14.9.2006 | 17:28
Loksins komin í heiminn
Þann sjöunda september 2006 fæddist ég, enda voru margir farnir að bíða eftir mér. Þá sérstaklega hún Edda og mamma mín. Þær sögðu í hvert skipti sem ég fór að sofa, núna kem ég. En ég stríddi þeim bara í 6 vikur og kom þegar mér hentaði. Það tók mig ekki langan tíma að koma í heiminn, einungis 4 tíma, pabba og mömmu til mikilla gleði. Ég var 52 cm og 13,5 mörk (mömmu til mikilla gleði . Amma Guðrún og Pabbi tóku á móti mér og klukkutíma síðar var amma Kristín og "afi og amma" Árni og Edda komin að kíkja á mig. Ég fékk að bíða hjá þeim í c.a. klukkutíma á meðan það var verið að tjasla mömmu saman eftir kappaksturinn. En ég kom víst helst til of hratt fyrir hana mömmu mína.
Athugasemdir
Til lukku með sjálfa þig elsku litla frænka og frabær heimasíða,það verður gaman að fylgjast með þér hér. Knús og kossar fra Gunnu frænku
Gunna frænka (IP-tala skráð) 17.9.2006 kl. 15:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.